Icelandair Group hf. hefur keypt Hljómalindarreit ehf. sem á fasteignirnar
Hverfisgötu 26-34 og Smiðjustíg 4 í Reykjavík þar sem Icelandair Hótel
starfrækja Canopy Reykjavík. Leigusamningur milli Icelandair Hótel og
Hljómalindarreits ehf. er til ársins 2039. Eignir Icelandair Group munu hækka
um 4,5 milljarða við kaupin.
Frekari upplýsingar veitir:
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group
bogi@icelandairgroup.is
S: 665 8801