Afkoma í takt við væntingar

 

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri:

Afkoma fyrsta ársfjórðungs er í samræmi við afkomuáætlun sem við kynntum í byrjun febrúar. Við höfum gripið til margvíslegra aðgerða í rekstrinum til að ná fram hagræðingu og auknum tekjum. Vinna við þær aðgerðir gengur vel og í samræmi við áætlanir okkar. Við erum þess fullviss að við munum ná því markmiði sem við kynntum; að bæta afkomu félagsins um 30 milljónir USD á ársgrundvelli, þegar aðgerðirnar verða komnar að fullu til framkvæmda í ársbyrjun 2018.

Breyting á afkomumilli ára skýrist aðallega af lægri meðalverðum í millilandaflugi. Þá hefur gengisþróun verið félaginu óhagstæð. Tekjur af hótelgistingu aukast töluvert milli ára og nýtingin hefur aldrei verið betri á fyrsta ársfjórðungi þrátt fyrir framboðsaukningu.

Bókunarflæði er sterkt en vegna þrýstings á meðalfargjöld gerum við ráð fyrir krefjandi rekstrarskilyrðum í flugrekstri á árinu. Engu að síður gerum við ráð fyrir hóflegum vexti; spáð er áframhaldandi fjölgun ferðamanna til Íslands, nýjum áfangastöðum hefur verið bætt við, horfur í hótelrekstri eru góðar og frakt starfsemi félagsins gengur vel.   Fjárhagsstaða félagsins er mjög sterk og það er því vel í stakk búið til að takast á við sveiflur og nýta þau tækifæri sem gefast á mörkuðum. Frá síðustu afkomuspá hafa ytri aðstæður í rekstri félagsins batnað og uppfærum við því EBITDA spá okkar fyrir árið í 145-155 milljónir USD.

   

Nánari upplýsingar veita:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími: 896-1455
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími: 665-8801.

 

 

 

 

 

 


Viðhengi: