Icelandair: Bogi Nils Bogason tekur tímabundið við stöðu framkvæmdastjóra rekstrar samhliða stöðu forstjóra

Tilkynnt var um í júlí sl. að Sylvía Kristín Ólafsdóttir myndi láta af störfum sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Icelandair. Hún lætur formlega af störfum í dag en síðustu mánuði hefur hún aðstoðað við yfirfærslu verkefna. Ráðningaferli er í fullum gangi en Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair tekur tímabundið við stöðu framkvæmdastjóra rekstrar samhliða stöðu forstjóra þangað til gengið hefur verið frá ráðningu.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:
„Ég vil þakka Sylvíu fyrir mikilvægt framlag í þágu Icelandair og frábært samstarf síðastliðin ár. Þá óska ég henni alls hins besta á nýjum vettvangi.“

Nánari upplýsingar
Fjárfestar: Íris Hulda Þórisdóttir, yfirmaður fjárfestatengsla. Netfang: iris@icelandair.is
Fjölmiðlar: Ásdís Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta og sjálfbærni. Netfang: asdis@icelandair.is