Icelandair: Uppgjör 3. ársfjórðungs 2025

  • Tekjuaukning 6%, heildartekjur 71,6 milljarðar króna (585,3 milljónir USD)
  • Met farþegatekjur 63,8 milljarðar króna (522,1 milljón USD) og einingatekjur jukust um 4%
  • Hagnaður eftir skatta 7,0 milljarðar króna (57,3 milljónir USD), dróst saman um 1,5 milljarða króna (11,9 milljónir USD)
  • EBIT var 9,1 milljarður króna (74,4 milljónir USD), samanborið við 10,2 milljarða króna (83,5 milljónir) í þriðja ársfjórðungi í fyrra, en neikvæð gengisáhrif að fjárhæð 1,2 milljarðar króna
    (10 milljónir USD) og áhrif einstakra kostnaðarþátta höfðu áhrif á EBIT afkomu
  • Áætlað er að hagræðingarverkefni sem ráðist hafði verið í við lok þriðja ársfjórðungs muni skila yfir 12,2 milljörðum króna (100 milljónum USD) á ársgrundvelli
  • Farþegar voru 1,7 milljónir og fjölgaði um 2% í takt við mikla eftirspurn til og frá Íslandi
  • Icelandair var stundvísasta flugfélag í Evrópu í júlí og september skv. Cirium
  • Lausafjárstaða 61,3 milljarðar króna (502,8 milljónir) í lok fjórðungsins og jókst um
    13,0 milljarða króna (107 milljónir USD) á milli ára
  • Gert er ráð fyrir að EBIT fyrir árið í heild verði neikvæð sem nemur 1,2 – 2,4 milljörðum króna (10-20 milljónum USD).


Bogi Nils Bogason, forstjóri

„Tekjur jukust á milli ára þrátt fyrir þrýsting á fargjöld á Norður-Atlantshafsmarkaðnum en fjölmargir þættir höfðu neikvæð áhrif á kostnað. Þar af leiðandi var uppgjör þriðja ársfjórðungs undir væntingum okkar. Við sáum hins vegar jákvæða þróun þegar kemur að skilvirkni sem endurspeglaðist meðal annars í færri stöðugildum þrátt fyrir aukið flugframboð og í framúrskarandi stundvísi. Þá hélt fraktstarfsemi okkar áfram að þróast í jákvæða átt og leiguflugstarfsemin skilaði góðri rekstrarniðurstöðu.

Eftir átta ár í ósjálfbærum rekstri er áhersla okkar skýr – að snúa rekstri félagsins við, ekki síðar en á næsta ári. Í því skyni höfum við aðlagað flugframboð okkar fyrir árið 2026 að aðstæðum, munum fækka flugvélum í farþegaleiðakerfinu um tvær og höfum ákveðið að hætta rekstri Boeing 767 breiðþotna í lok 2026. Í lok þriðja ársfjórðungs höfðum við ráðist í umbótaverkefni sem við gerum ráð fyrir að muni skila yfir 100 milljónum dala á ársgrundvelli þegar þau verða komin að fullu til framkvæmda. Við munum ekki láta staðar numið þar. Markmið okkar er að allir kostnaðarliðir félagsins verði samkeppnishæfir og eru frekari hagræðingaraðgerðir þegar í pípunum. Við erum nú að hefja mikilvægar kjaraviðræður við flugstéttirnar sem munu hafa áhrif á framtíð Icelandair. Lykilþáttur í því að félagið komist í arðbæran rekstur og geti vaxið og dafnað til framtíðar er að nýir kjarasamningar muni stuðla að samkeppnishæfni félagsins í krefjandi rekstrarumhverfi, styðja við fjárfestingar í nýjum flota og á sama tíma tryggja áfram spennandi störf og eftirsótt vinnuumhverfi.

Þrátt fyrir krefjandi ytri aðstæður sjáum við tækifæri í breytingum á samkeppnisumhverfinu hér á landi sem munu leiða til skynsamlegra flugframboðs til og frá Íslandi. Við þessar markaðsaðstæður er áhersla okkar fyrst og fremst á markaðina til og frá Íslandi. Þannig erum við að auka flug til Suður-Evrópu og Skandinavíu og á móti að draga úr framboði til Norður-Ameríku í ljósi aðstæðna á Norður-Atlantshafsmarkaðnum. Á sama tíma er samkeppnin við alþjóðleg flugfélög ennþá gríðarleg en yfir 20 erlend flugfélög fljúga til og frá Íslandi allt árið um kring. Þess vegna er það algjört forgangsverkefni hjá okkur að bæta samkeppnishæfni félagsins. Ég er sannfærður um að þessar skýru áherslur í rekstrinum, ásamt sterkri fjárhagsstöðu, geri okkur vel í stakk búin að snúa rekstri félagsins við og skila hagnaði á árinu 2026.“

Vefútsending 23. október 2025

Kynning á uppgjöri 3. ársfjórðungs ársins 2025 verður í beinu streymi á https://icelandairgroup.com. Streymið hefst kl. 8:30 fimmtudaginn 23. október 2025 þar sem Bogi Nils Bogason forstjóri og Ívar S. Kristinsson framkvæmdastjóri fjármála munu fara yfir uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn verður á ensku. Kynningin verður aðgengileg að fundi loknum á heimasíðu félagsins og undir fyrirtækjafréttum á heimasíðu Nasdaq Nordic: http://www.nasdaqomxnordic.com/news/companynews

Nánari upplýsingar
Fjárfestar: Íris Hulda Þórisdóttir, yfirmaður fjárfestatengsla. Netfang: iris@icelandair.is
Fjölmiðlar: Ásdís Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta og sjálfbærni. Netfang: asdis@icelandair.is