Icelandair: Farþegum fjölgaði um 14% í október

Icelandair flutti alls 464 þúsund farþega í október sem er aukning um 14% milli ára. Vöxturinn var mikill á markaðnum til Íslands, þar sem farþegafjöldi jókst um 20% milli ára, og á markaðnum frá Íslandi þar sem aukningin var 31%. Í mánuðinum voru 37% farþega á leið til Íslands, 20% frá Íslandi, 38% voru tengifarþegar og 5% ferðuðust innanlands. Sætanýting nam 85,0% og stundvísi var 81,4%, sem er lækkun um 3,1 prósentustig samanborið við síðasta ár, vegna mikillar snjókomu í lok mánaðarins sem olli umtalsverðum röskunum á flugi til og frá Keflavíkurflugvelli yfir tveggja daga tímabil. Það sem af er ári hafa 4,4 milljónir farþega flogið með Icelandair, sem eru 8% fleiri en á sama tímabili í fyrra.

Leiguflugsstarfsemin hélt áfram að vaxa með 25% aukningu í seldum blokktímum á milli ára. Fraktflutningar, mældir í tonnkílómetrum, drógust saman um 22% en samdrátturinn í fluttum tonnum nam 11% og skýrist munurinn þar á milli af breytingu á markaðssamsetningu. Flutt magn hefur dregist saman  á lengri leiðum til Norður-Ameríku, á meðan innflutningur hefur aukist um 12% á styttri leiðum frá Evrópu. Kolefnislosun á hvern tonnkílómetra dróst saman um 4%, vegna hærra hlutfalls  eyðslugrennri flugvéla í flotanum.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:
„Farþegum fjölgaði umtalsvert í október sem er í takt við áherslu okkar á að vaxa utan háannar og þannig jafna árstíðasveiflu í rekstrinum. Það er einnig mjög ánægjulegt að sjá að áherslur okkar á markaðina til og frá landinu halda áfram að skila árangri.

Stundvísi var góð framan af október en mikil snjókoma í lok mánaðarins gerði það að verkum að stundvísi minnkaði milli ára. Ég vil þakka starfsfólki félagsins sem lögðust öll á eitt við erfiðar og óvenjulegar aðstæður á þessum árstíma. Því miður neyddumst við til þess að aflýsa fjölda flugferða vegna þessara aðstæðna.  

Í mánuðinum kynntum við Miami í Flórída sem nýjan áfangastað og er það í takt við áherslur okkar á að auka flug yfir vetrartímann til áfangastaða sem eru vinsælir utan okkar háannatíma. Miami er spennandi áfangastaður fyrir Íslendinga og aðra Evrópubúa en jafnframt sjáum við mikil tækifæri í að kynna flug til Íslands og áfram til Evrópu fyrir fólki í suðurhluta Flórída.“ 

Nánari upplýsingar
Fjárfestar: Íris Hulda Þórisdóttir, yfirmaður fjárfestatengsla. Netfang: iris@icelandair.is
Fjölmiðlar: Ásdís Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta og sjálfbærni. Netfang: asdis@icelandair.is