Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í viku 10 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 16.147.962 eigin hluti að kaupverði 322.656.231 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð
3.3.202509:54:332.000.00020,440.800.000
3.3.202515:15:16347.96220,257.046.231
4.3.202510:08:042.000.0002040.000.000
4.3.202511:02:272.500.0002050.000.000
4.3.202513:53:362.000.00019,839.600.000
4.3.202515:11:46150.00019,72.955.000
4.3.202515:12:51150.00019,72.955.000
5.3.202509:57:162.000.00019,939.800.000
5.3.202513:57:282.000.00019,939.800.000
5.3.202515:16:103.000.00019,959.700.000
Samtals 16.147.962 322.656.231

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 27. febrúar sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. mars 2024.

Kvika hefur nú keypt samtals 16.147.962 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,34% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 322.656.231 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 2.500.000.000 að kaupvirði.

Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 27. febrúar 2025 til aðalfundar Kviku á árinu 2026 nema hámarks kaupvirði verði náð fyrir þann tíma. Gildistími endurkaupaáætlunarinnar er þó háður því að heimild til endurkaupa verða framlengd á aðalfundi bankans hinn 26. mars næstkomandi.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög. þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014. sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016. sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is