Kvika – Fjarskiptainnviðir hs.: Árshlutauppgjör 30. júní 2025
Kvika – Fjarskiptainnviðir hs. gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. á árinu 2022. Meðfylgjandi er árshlutareikningur fyrir árið 2025 fyrir Kviku – Fjarskiptainnviði hs.
- Hagnaður sjóðsins á fyrri árshelmingi 2025 nam 1,4 milljónum króna samkvæmt rekstrarreikningi.
- Hrein eign sjóðsins var 8,6 milljón króna samkvæmt efnahagsreikningi.
- Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. Við könnun þeirra kom ekkert fram sem bendir til annars en að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, efnahag hans 30. júní 2025 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Kviku eignastýringar hf. í síma 522-0010.