Kvika banki hf.: Afkoma Kviku banka á þriðja ársfjórðungi 2025

Á stjórnarfundi þann 5. nóvember 2025 samþykktu stjórn og forstjóri árshlutauppgjör samstæðu Kviku banka hf. („Kvika“) fyrir þriðja ársfjórðung og fyrstu níu mánuði ársins 2025.

Helstu atriði í afkomu þriðja ársfjórðungs (3F 2025):

Helstu atriði efnahags:

Helstu atriði fyrstu níu mánaða ársins (9M 2025):

Afkoma af eignum haldið til sölu:

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku:

„Afkoma Kviku á þriðja ársfjórðungi endurspeglar áframhaldandi styrk í kjarnastarfsemi bankans. Rekstrarhagnaður tímabilsins var stöðugur milli fjórðunga, studdur af vaxandi útlánum, sterkum vaxtamun og fjölbreyttum tekjustraumum. Þá er lausafjárstaða bankans áfram mjög sterk og eiginfjárhlutfall hátt, sem veitir svigrúm til frekari vaxtar.

Útlánavöxtur á grunni bætts vaxtamunar hefur verið drifkraftur árangursins á árinu. Við erum nú komin langleiðina að markmiðum ársins fyrir útlánvöxt og hefur gengið vel að þróa lánabók bankans í takt við stefnu okkar, með áherslu á fjölbreyttar og vel tryggðar lánveitingar.

Erfiðar aðstæður á verðbréfamörkuðum á Íslandi hafa haft neikvæð áhrif á þóknanamyndun bankans, einkum hjá Eignastýringu og í Markaðsviðskiptum, en prýðilega hefur gengið í Fyrirtækjaráðgjöf. Starfsemi Kviku í Bretlandi heldur áfram að skila góðum árangri bæði í  lánastarfsemi og fjárfestingum. Aldrei hefur verið meiri hagnaður af rekstri bankans þar, en hann nam 563 milljónum króna í þriðja ársfjórðungi.

Verðbólga og vextir hafa reynst þrálátari en vonast var til, á sama tíma og greinileg merki eru um að hægjast sé á innlendum umsvifum. Þrátt fyrir þetta eru heimili og fyrirtæki almennt í sterkri stöðu til að standa af sér tímabundinn mótbyr, enda skuldastaða hófleg, sparnaður nokkur og vanskil áfram fátíð.

Þótt ljóst sé að atburðir síðustu vikna, á borð við rekstrarstöðvun álversins á Grundartanga og óvissu í kjölfar vaxtadóms Hæstaréttar, hafi áhrif á efnahagsumsvif til skemmri tíma, teljum við ekki að þeir hafi veruleg áhrif á starfsemi Kviku. Lausa- og eiginfjárstaða okkar er feiknasterk, útlánavöxtur er á áætlun og vaxtamunur hefur haldist stöðugur. Þá búum við að ákveðinni innbyggðri áhættudreifingu í ljósi þess að hluti lánabókar okkar er óháður íslenskum markaðsaðstæðum.

Samrunaferlið við Arion banka er í góðum farvegi og fer nú að líða undir lok áreiðanleikakannana og forviðræður við Samkeppniseftirlitið eru formlega hafnar. Við gerum ráð fyrir að ferlið muni taka nokkurn tíma en á meðan málinu vindur fram leggjum við áfram áherslu á sterkan daglegan rekstur og að hámarka virði fyrir hluthafa og viðskiptavini.“

Kynningarfundur og fjárfestakynning
Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn 6 nóvember kl. 08:30 í höfuðstöðvum bankans á 9. hæð í Katrínartúni 2, 105 Reykjavík. Fundinum verður jafnframt streymt á íslensku á eftirfarandi vefslóð:

https://kvika.is/kynning-a-uppgjori-9m-2025/

Hægt er að senda tölvupóst með spurningum fyrir fund eða á meðan honum stendur á fjarfestatengsl@kvika.is eða í gegnum Slido appið hér.

Meðfylgjandi er fjárfestakynning. Að auki mun upptaka með enskum texta vera gerð aðgengileg á vefsvæði Kviku.