Kvika - Fjarskiptainnviðir gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2022. Meðfylgjandi er ársreikningur fyrir árið 2025 fyrir sjóðinn Kvika – Fjarskiptainnviðir hs.
· Afkoma sjóðsins á árinu 2025 nam 3,2 m. kr. samkvæmt rekstrarreikningi.
· Ársreikningurinn var endurskoðaður af Deloitte ehf. Það er álit þeirra að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2025, efnahag hans 31. desember 2025 og breytingu á hreinni eign á árinu 2025, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Kviku eignastýringar hf. í síma 522-0010.