Kvika banki hf.: Ársreikningur 2025

Farsælt og viðburðaríkt ár að baki - traustur rekstrarárangur og mikil aukning vaxtatekna

Á stjórnarfundi þann 11. febrúar 2026 samþykktu stjórn og forstjóri ársreikning samstæðu Kviku banka hf. („Kvika“) fyrir árið 2025.

Helstu atriði ársreiknings og afkomu 2025:

Afkoma af eignum haldið til sölu:

Helstu atriði efnahags:

Helstu atriði í afkomu fjórða ársfjórðungs (4F 2025)

Stjórn bankans leggur til að greiddur verði 0,36 króna arður á hlut eða 1.566 milljónir króna, að teknu tilliti til eigin bréfa, á árinu 2026 vegna rekstrarársins 2025. Arðgreiðslan nemur 25% af hagnaði samstæðu Kviku eftir skatta sem er til samræmis við arðgreiðslustefnu bankans. Ennfremur mun stjórn íhuga að greiða út sérstakan arð og/eða framkvæma frekari endurkaup á eigin bréfum síðar á árinu eða á næsta aðalfundi bankans.

Í tilefni af fyrirhuguðum arðgreiðslum hafa Kvika og Arion banki hf. undirritað viðauka við áformabréf um samruna félaganna frá því í júlí 2025. Í viðaukanum er ráðgert að skiptihlutföll í samrunanum verði aðlöguð til samræmis við arðgreiðslurnar þannig að efnahagslegar forsendur samrunans, eins og þær lágu til grundvallar við undirritun áformabréfsins, raskist ekki.

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku:

„Árið 2025 var bæði farsælt og viðburðaríkt, bankinn uppskar traustan rekstrarárangur, kynnti til sögunnar nýjungar og raungerði þau markmið sem sett voru fram á Fjárfestadegi Kviku í lok árs 2024.

Afkoma bankans á árinu 2025 er góð, auknar vaxtatekjur eru áberandi og má rekja þær bæði til stækkandi lánabókar hér heima og í Bretlandi sem og til hagstæðrar fjármögnunar. Áfangar á árinu voru ófáir, kynnt var til sögunnar ný íbúðalánavara undir merkjum Auðar, fjárfestingasjóðurinn Harpa lauk sínu fyrsta rekstrarári, gefið var út fyrsta skuldabréf bankans í evrum og fyrirtækjaráðgjöf stýrði afar vel heppnuðu útboði á eftirstandandi hlut ríkisins í Íslandsbanka. Bankinn fagnaði svo í október 10 ára afmæli sínu í núverandi mynd og við þau tímamót var merkilegt að fara yfir þann árangur sem náðst hefur og þá miklu umbreytingu sem orðið hefur á rekstri bankans.

Í kjölfar sölu bankans á TM skilaði Kvika til hluthafa mestu fjármunum í sögu félagsins, samtals 27 milljörðum í formi arðgreiðslna og endurkaupa. Eiginfjárstaða við lok árs er engu að síður gríðarlega sterk og hefur bankinn getu til að skila allt að 15 milljörðum króna til hluthafa á árinu 2026 í formi arðgreiðslna eða endurkaupa án þess að  raska vaxtarmarkmiðum eða fjárhagslegum styrk félagsins. Frekari ákvarðanir um útgreiðslur verða teknar þegar línur skýrast í samrunaviðræðum.

Samrunaferli við Arion banka hefur dregist lengur en við hefðum óskað en viðræður við samkeppnisyfirvöld halda áfram og miðar ágætlega”

Kynningarfundur og fjárfestakynning
Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn 12. febrúar kl. 08:30 í höfuðstöðvum bankans á 9. hæð í Katrínartúni 2, 105 Reykjavík. Fundinum verður jafnframt streymt á íslensku á eftirfarandi vefslóð:

https://kvika.is/kynning-a-uppgjori-12m-2025/

Hægt er að senda tölvupóst með spurningum fyrir fund eða á meðan honum stendur á netfangið; fjarfestatengsl@kvika.is

Meðfylgjandi er fjárfestakynning. Að auki mun upptaka með enskum texta vera gerð aðgengileg á vefsvæði Kviku.