Heimar hf.: Breytt fjárhagsdagatal og upplýsingar um stjórn

Fjárhagsdagatali Heima hf. 2025 - 2026, sem var birt 23. desember 2024, hefur verið breytt.

Áætlaðar dagsetningar eru nú:

Afkomutilkynning 1F 12. maí 2025 
Afkoma fyrstu 6 mánaða 21. ágúst 2025 
Afkomutilkynning 3F 22. október 2025 
Stjórnendauppgjör 2025 4. febrúar 2026 
Ársuppgjör 2025 4. mars 2026 
Aðalfundur 2026 26. mars 2026 

Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaða.

Stjórn félagsins hefur skipt með sér verkum:

Tómas Kristjánsson var kjörinn formaður stjórnar og Bryndís Hrafnkelsdóttir varaformaður stjórnar. Aðrir stjórnarmenn eru Benedikt Olgeirsson, Guðrún Tinna Ólafsdóttir og Heiðrún Jónsdóttir.

Í endurskoðunarnefnd tóku sæti Anna Þórðardóttir löggiltur endurskoðandi, sem formaður, og stjórnarmennirnir Benedikt Olgeirsson og Heiðrún Jónsdóttir.

Í starfskjaranefnd tóku sæti stjórnarmennirnir Guðrún Tinna Ólafsdóttir, sem formaður, Tómas Kristjánsson og Bryndís Hrafnkelsdóttir.

Áðurnefnd skipan felur í sér að kynjahlutfall stjórnar er 60% konur og 40% karlar. Hlutfall kvenna í undirnefndum stjórnar er 67% og karla 33%.