Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í viku 16 keypti Heimar hf. („Heimar“) 2.000.000 eigin hluti að kaupverði 70.250.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
16.4.202514:59500.00034,617.300.000
17.4.202514:51500.00035,117.550.000
18.4.202512:271.000.00035,435.400.000
Samtals 2.000.000 70.250.000

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 8. apríl 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2026.

Heimar átti 1.645.000 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 3.645.000 hluti, eða um 0,2% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 126.414.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is