Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í viku 29 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 500.000 eigin hluti að kaupverði 18.650.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
15.7.202510:16500.00037,318.650.000
Samtals 500.000 18.650.000

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 9. júlí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2026.

Heimar áttu 14.445.000 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 14.945.000 hluti, eða um 0,74% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 536.694.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is