Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í viku 31 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 1.150.000 eigin hluti að kaupverði 44.015.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
29.7.202513:47350.00038,113.335.000
31.7.202512:14400.00038,215.280.000
01.8.202510:03400.00038,515.400.000
Samtals 1.150.000 44.015.000

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 9. júlí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2026.

Heimar áttu 16.295.000 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 17.445.000 hluti, eða um 0,86% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 631.244.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is