Heimar hf. („Heimar“ eða „félagið“) munu birta uppgjör fyrir tímabilið 1.1. - 30.06.2025, eftir lokun markaða fimmtudaginn 21. ágúst 2025.
Af því tilefni bjóða Heimar til opins kynningarfundar samdægurs kl. 16:15. Fundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins í Smáralind, Hagasmára 1, 201 Kópavogi. Boðið verður upp á léttar veitingar.
Halldór Benjamín Þorbergsson forstjóri Heima mun kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu. Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið fjarfestatengsl@heimar.is
Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:
Afkoma fyrstu 6 mánaða 2025 - Heimar
Nánari upplýsingar veitir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima hf., sími: 821 0001