Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í viku 33 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 800.000 eigin hluti að kaupverði 29.600.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
12.08.202511:07400.00037,314.920.000
14.08.202510:06400.00036,714.680.000
Samtals 800.000 29.600.000

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 9. júlí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2026.

Heimar áttu 18.745.000 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 19.545.000 hluti, eða um 0,97% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 710.004.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is