Í viku 35 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 1.400.000 eigin hluti að kaupverði 51.310.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
25.08.2025 | 15:24 | 500.000 | 37 | 18.500.000 |
27.08.2025 | 10:06 | 500.000 | 36,5 | 18.250.000 |
28.08.2025 | 10:40 | 400.000 | 36,4 | 14.560.000 |
Samtals | 1.400.000 | 51.310.000 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 9. júlí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2026.
Heimar áttu 20.845.000 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 22.245.000 hluti, eða um 1,1% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 809.034.000 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is