Í viku 37 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 2.270.000 eigin hluti að kaupverði 82.661.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
08.09.2025 | 10:08 | 400.000 | 36,5 | 14.600.000 |
09.09.2025 | 09:56 | 450.000 | 36,7 | 16.515.000 |
10.09.2025 | 09:40 | 470.000 | 36,3 | 17.061.000 |
11.09.2025 | 09:51 | 450.000 | 36,3 | 16.335.000 |
12.09.2025 | 10:19 | 500.000 | 36,3 | 18.150.000 |
Samtals | 2.270.000 | 82.661.000 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 9. júlí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2026.
Heimar áttu 22.985.000 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 25.255.000 hluti, eða um 1,25% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 891.695.000 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is