Í viku 38 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 1.500.000 eigin hluti að kaupverði 54.550.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
16.09.2025 | 13:49 | 500.000 | 36,8 | 18.400.000 |
17.09.2025 | 13:34 | 500.000 | 36,1 | 18.050.000 |
19.09.2025 | 13:15 | 500.000 | 36,2 | 18.100.000 |
Samtals | 1.500.000 | 54.550.000 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 9. júlí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2026.
Heimar áttu 25.255.000 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 26.755.000 hluti, eða um 1,32% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 946.245.000 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is