Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í viku 40 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 1.433.761 eigin hluti að kaupverði 49.988.259 kr. í samræmi við eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
29.9.202511:37433.76134,915.138.259
30.9.202514:01500.00034,917.450.000
1.10.202515:25500.00034,817.400.000
Samtals 1.433.761 49.988.259

 
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 29. september 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2026.

Heimar áttu 27.485.767 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 28.919.528 hluti, eða um 1,43% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 1.049.332.257 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is