Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í viku 41 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 1.700.000 eigin hluti að kaupverði 60.800.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
6.10.202511:18500.00035,317.650.000
7.10.202511:51500.00035,217.600.000
9.10.202514:44700.00036,525.550.000
Samtals 1.700.000 60.800.000

 Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 29. september 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2026.

Heimar áttu 28.919.528 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 30.619.528 hluti, eða um 1,51% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 1.110.132.257 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is