Í viku 42 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 1.600.000 eigin hluti að kaupverði 58.440.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
| 13.10.2025 | 15:00 | 600.000 | 36,4 | 21.840.000 |
| 14.10.2025 | 14:34 | 500.000 | 36,5 | 18.250.000 |
| 15.10.2025 | 12:12 | 500.000 | 36,7 | 18.350.000 |
| Samtals | 1.600.000 | 58.440.000 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 29. september 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2026.
Heimar áttu 30.619.528 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 32.219.528 hluti, eða um 1,59% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 1.168.572.257 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is