Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í viku 43 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 2.850.000 eigin hluti að kaupverði 106.570.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
21.10.202515:27650.00036,823.920.000
22.10.202511:57700.00036,925.830.000
23.10.202513:25700.00037,426.180.000
24.10.202512:22800.00038,330.640.000
Samtals 2.850.000 106.570.000

 Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 29. september 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2026.

Heimar áttu 32.219.528 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 35.069.528 hluti, eða um 1,73% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 1.275.142.257 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is