Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í viku 44 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 4.000.000 eigin hluti að kaupverði 152.200.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
27.10.202514:331.000.00038,638.600.000
28.10.202514:511.000.00038,538.500.000
29.10.202515:201.000.00037,637.600.000
31.10.202510:411.000.00037,537.500.000
Samtals 4.000.000 152.200.000

 Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 29. september 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2026.

Heimar áttu 35.469.528 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 39.469.528 hluti, eða um 1,95% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 1.427.342.257 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is