Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um þann 29. september sl. er nú lokið.
Í viku 45 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 1.562.547 eigin hluti að kaupverði 57.401.730 kr. í samræmi við eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
| 03.11.2025 | 10:05 | 1.000.000 | 36,7 | 36.700.000 |
| 06.11.2025 | 14:53 | 562.547 | 36,8 | 20.701.730 |
| Samtals | 1.562.547 | 57.401.730 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 29. september 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2026. Endurkaupum hefur nú verið lokið.
Heimar áttu 39.469.528 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 41.032.075 hluti, eða um 2,03% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 1.484.743.987 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is