Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í viku 48 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 1.700.000 eigin hluti að kaupverði 62.125.000 kr., í samræmi við eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
24.11.202509:40450.00036,916.605.000
25.11.202509:52450.00036,816.560.000
26.11.202514:37400.00036,214.480.000
27.11.202511:49400.00036,214.480.000
Samtals 1.700.000 62.125.000

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 11. nóvember 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2026.

Heimar áttu 46.850.000 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 48.550.000 hluti, eða um 2,40% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 1.764.021.175 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is