Heimar hf.: Stækkun á skuldabréfaflokknum HEIMAR301036 GB

Heimar hf. („Heimar“ eða „félagið“) hefur í dag lokið stækkun á skuldabréfaflokknum HEIMAR301036 GB.
 
HEIMAR301036 GB er verðtryggður skuldabréfaflokkur sem er veðtryggður með almennu tryggingarfyrirkomulagi félagsins.
 
Seld voru skuldabréf að nafnverði 1.000 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,95% og verður heildarstærð flokksins því í kjölfar stækkunar að nafnverði 3.000 m.kr.
 
Áætlaður uppgjörsdagur viðskiptanna er 19. desember 2025 og verður í kjölfarið óskað eftir því að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq.
 
Tilgangur útgáfunnar er að fjármagna fjárfestingaverkefni félagsins næstu mánuði.
 
ACRO verðbréf hf. hafði umsjón með viðskiptunum og stækkun skuldabréfaflokksins.
 
Umgjörð um græna fjármögnun ásamt vottun CICERO má nálgast á vefsíðu Heima á slóðinni https://www.heimar.is/fjarfestar/fjarmoegnun/graen-fjarmoegnun/.
 
Nánari upplýsingar veitir:
Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is