Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í viku 50 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 3.150.000 eigin hluti að kaupverði 116.895.000 kr., í samræmi við eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
08.12.202513:19600.00036,8022.080.000
10.12.202509:54750.00036,9027.675.000
11.12.202510:55900.00037,4033.660.000
12.12.202514:23900.00037,2033.480.000
Samtals 3.150.000 116.895.000

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 11. nóvember 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2026.

Heimar áttu 50.250.000 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 53.400.000 hluti, eða um 2,64% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 1.942.726.175 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is