Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í viku 13 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 548.000 eigin hluti að kaupverði 18.876.000 kr., í samræmi við eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
26.3.202610:13248.00034,508.556.000
27.3.202609:33300.00034,4010.320.000
Samtals 548.000 18.876.000

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 25. mars 2026. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en til lok árs 2026.

Heimar áttu 13.552.000 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 14.100.000 hluti, eða um 0,72% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð keyptra hluta 2026 518.745.600 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythor@heimar.is