Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í viku 17 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 1.200.000 eigin hluti að kaupverði 42.030.000 kr., í samræmi við eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
20.4.202609:45300.00035,2010.560.000
21.4.202610:39300.00035,2010.560.000
22.4.202610:48300.00035,0010.500.000
24.4.202610:38283.70034,709.844.390
24.4.202610:4216.30034,70565.610
Samtals 1.200.000 42.030.000

 Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 25. mars 2026. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en til lok árs 2026.

Heimar áttu 17.400.000 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 18.900.000 hluti, eða um 0,96% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð keyptra hluta 2026 675.075.600 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythor@heimar.is