Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í viku 20 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 1.200.000 eigin hluti að kaupverði 43.200.000 kr., í samræmi við eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
11.5.202615:06300.00035,2010.560.000
12.5.202612:33300.0003610.800.000
13.5.202609:58300.00036,4010.920.000
15.5.202610:06300.00036,4010.920.000
Samtals
1.200.000
43.200.000

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 25. mars 2026. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en til lok árs 2026.

Heimar áttu 21.000.000 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 22.200.000 hluti, eða um 1,13% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð keyptra hluta á árinu 2026 801.225.600 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythor@heimar.is