Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í viku 21 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 1.500.000 eigin hluti að kaupverði 54.180.000 kr., í samræmi við eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
18.5.202609:44300.00036,8011.040.000
19.5.202610:09300.00036,2010.860.000
20.5.202610:27300.00036,0010.800.000
21.5.202610:19300.00035,8010.740.000
22.5.202610:11300.00035,8010.740.000
Samtals
1.500.000
54.180.000

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 25. mars 2026. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en til lok árs 2026.

Heimar áttu 22.200.000 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 23.700.000 hluti, eða um 1,20% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð keyptra hluta á árinu 2026 855.405.600 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythor@heimar.is