Vísað er til tilkynningar Heima hf. („Heimar“), dags. 27. mars 2026, um tilfærslu skuldabréfaflokksins GRÓSKA 29 GB.
Samþykktar skilmálabreytingar hafa nú tekið gildi í kerfum Nasdaq Iceland. Breytingarnar fela einkum í sér skuldaraskipti með því að í stað Grósku ehf. eru Heimar nú skuldari samkvæmt skuldabréfunum. Þá eru kröfur samkvæmt skuldabréfunum nú tryggðar samkvæmt almennu tryggingafyrirkomulagi Heima
Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson, framkvæmdastjóri fjármála, eythorb@heimar.is