REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 43

Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. september 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 24. september 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 43. viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 504.200 eigin hluti að kaupverði 63.012.400 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
20/10/2509:51100.000123,0012.300.00010.375.000
20/10/2510:334.200122,00512.40010.379.200
21/10/2512:19100.000123,0012.300.00010.479.200
23/10/2510:18100.000124,0012.400.00010.579.200
24/10/2510:02100.000128,0012.800.00010.679.200
24/10/2510:46778127,0098.80610.679.978
24/10/2513:1669.222127,008.791.19410.749.200
24/10/2514:1030.000127,003.810.00010.779.200
      
Samtals 504.200 63.012.40010.779.200

Reitir hafa nú keypt samtals 2.379.200 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 66,1% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 290.142.400 kr. sem samsvarar 65,9% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 3.600.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 440 milljónir króna.

Frá lokum annars ársfjórðungs, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 6.579.200 eigin hluti fyrir 766.082.400 kr.

Reitir eiga nú samtals 10.779.200 eigin hluti, eða um 1,55% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 686.220.800.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.