REITIR: Breyting í framkvæmdastjórn

Kristófer Þór Pálsson, framkvæmdastjóri fjárfestinga, greininga og viðskiptaþróunar, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu. Kristófer hefur starfað hjá félaginu í um áratug, fyrst sem framkvæmdastjóri viðskiptasviðs og nú síðustu ár í þeirri stöðu sem hann gegnir. Starfslok Kristófers verða um miðjan júní.  

Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita: 

Kristófer gekk til liðs við félagið árið 2016 og hefur leitt umfangsmiklar fjárfestingar sem hafa markað Reitum leiðandi stöðu á sínu sviðiHann hefur komið að uppbyggingu og framþróun félagsins og mótun þess úr því að vera hefðbundinn leigusali í þekkingar- og þróunarfélag. Vaxtartækifærin eru þegar farin að raungerast og félagið er í einstakri stöðu til frekari sóknar. Við þökkum Kristófer innilega fyrir gefandi samstarf og mikilvægt framlag hans til félagsins og óskum honum alls hins besta.“ 

Upplýsingar veitir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, í netfanginu gudni@reitir.is eða í síma 575 9000 og 624 0000.