Aðalfundur Símans hf. verður haldinn fimmtudaginn 10. mars 2016 kl. 10:00 að
Nauthól við Nauthólsvík.
Framboðsfrestur til stjórnar Símans hf. rann út þann 5. mars sl. Eftirtaldir
einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins. Er það mat
stjórnar að öll framboð séu gild sbr. 63. gr. a hlutafélagalaga.
-- Bertrand Kan
-- Birgir Sveinn Bjarnason
-- Heiðrún Emilía Jónsdóttir
-- Sigríður Hrólfsdóttir
-- Stefán Árni Auðólfsson
Samkvæmt samþykktum félagsins eru fimm í stjórn og er því sjálfkjörið í stjórn
félagsins.
Frekari upplýsingar um framangreinda aðila eru í viðhengi.