Fundur Símans hf. með Arion banka hf., sem lánveitanda og veðvörsluaðila, og
skuldabréfaeigendum í skuldabréfaflokknum SKIPTI 13 01 verður haldinn
fimmtudaginn 7. apríl 2016 kl. 16:45 í Ármúla 25, 108 Reykjavík
Dagskrá
1. Ákvörðun um að breyta tryggingarbréfi, upphaflega dags. 22. desember 2005,
ásamt síðari breytingum.
2. Ákvörðun um að breyta veðskjölunum, eins og þau eru skilgreind í
samkomulagi um sameiginleg veð, veðvörslu og ákvarðanatöku, dags. 13. júní
2013, milli Símans hf., Arion banka hf., sem lánveitandi og veðvörsluaðili,
og eigenda skuldabréfa í skuldabréfaflokknum SKIPTI 13 01
Atkvæðisréttur lánveitenda miðast við stöðu krafna þeirra þann 23. mars 2016.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent frá kl. 15:30 á fundardegi.
Tillögur Símans hf. fyrir fundinn og umboðseyðublað er að finna í viðhengjum.
Frekari upplýsingar veita Helgi Þorsteinsson, forstöðumaður fjárstýringar, í
farsíma 892 6699 og Óskar Hauksson, fjármálastjóri, í farsíma 899 6169.