Síminn hf. – Framboð til stjórnar á aðalfundi félagsins 16. mars 2017

Aðalfundur Símans hf. verður haldinn fimmtudaginn 16. mars 2017 kl. 10:00 að
Nauthól við Nauthólsvík. 

Framboðsfrestur til stjórnarsetu í Símanum hf. rann út þann 11. mars 2017.

Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins. Er
það mat stjórnar að öll framboð séu gild  sbr. 63. gr. a. hlutafélagalaga. 

  -- Bertrand B. Kan
  -- Birgir Sveinn Bjarnason
  -- Heiðrún Emilía Jónsdóttir
  -- Sigríður Hrólfsdóttir
  -- Stefán Árni Auðólfsson

Samkvæmt samþykktum félagsins eru fimm í stjórn og er því sjálfkjörið í stjórn
félagsins. 

Frekari upplýsingar um framangreinda aðila eru í viðhengi.
                 

Viðhengi: