Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir fyrsta ársfjórðung 2018 eftir lokun markaðar þann 24. apríl næstkomandi. Vakin er athygli á því að uppgjörið verður birt tveimur dögum fyrr en áætlað var samkvæmt uppgjörsdagatali sem birt var í fréttakerfi Kauphallar þann 21. desember 2017. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 25. apríl 2018 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 8:30.
Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans www.siminn.is/forsida/siminn/fjarfestar/fjarhagsupplysingar/uppgjor og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni: https://livestream.com/accounts/11153656/events/8151236/player
Nánari upplýsingar veitir Ásta Nína Benediktsdóttir fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is