Síminn hf. - Hagnaður eykst milli ára

 Helstu niðurstöður úr rekstri 2F 2018

Orri Hauksson, forstjóri:

„Við erum ánægð með áframhaldandi rekstrarbata samstæðunnar á öðrum ársfjórðungi. Framlegð eykst lítillega miðað við fyrra ár og rekstrarkostnaður heldur áfram að þokast niður. Niðurstaðan batnar þannig á fyrri árshelmingi í heild.

Reikitekjur og umferð í farsíma voru heldur lægri í vor en í upphafi árs. Sjónvarp, internet og upplýsingatækni áttu hins vegar prýðis fjórðung. Þá er sérstaklega ánægjulegt að minnast á árangur Þrennunnar sem gekk mjög vel á fjórðungnum. Við sjáum þar sífellt fleiri unga viðskiptavini koma til Símans í farsímaviðskipti. Sveiflur í fjarskiptatekjum innan ársins hafa minnkað undanfarin ár með breyttu vöruframboði og sjónvarpsvörur félagsins eru nú eftirsóttar allan ársins hring, einnig um hásumar. Á þriðja ársfjórðungi kynntum við nýja lausn til leiks, Sjónvarps Símans fyrir alla, sem mun tryggja að allir landsmenn geta nálgast áskriftarþjónustu Símans óháð neti. Dótturfyrirtæki Símans skiluðu einnig jákvæðri niðurstöðu þar sem tekjur af þjónustu Sensa í upplýsingatækni jukust frá fyrri fjórðungi, en þær sveiflast iðulega innan árs. Míla náði góðum árangri í að ná stórum nýjum viðskiptum.

Framkvæmdastigið í landinu er hátt um þessar mundir og fjárfestingar samstæðunnar á tímabilinu eru umtalsverðar, ekki síst í innviðum sem duga munu áratugum saman. Uppbygging á ljósleiðara Mílu á höfuðborgarsvæðinu heldur áfram og nú er áherslan á að deila kostnaði með Gagnaveitu Reykjavíkur þar sem því er komið við. Til viðbótar er Míla að opna á nýjar ljósleiðaratengingar víða um land þar sem verklegar framkvæmdir fara fram. Eftir að hafa náð toppi á síðasta ári lækka heildarfjárfestingar samstæðunnar hins vegar rólega frá og með þessu ári.

Undanfarin ár hefur áherslan í rekstri verið að einfalda samstæðuna, fækka vörum og auka sjálfvirkni. Einingum hefur verið spyrt saman með hagkvæmari hætti en fyrr og aðgerðum er útvistað sem ekki teljast til kjarnastarfsemi. Við innleiddum persónuverndarlöggjöf Evrópusambandsins í vor og geta viðskiptavinir samstæðunnar nú með hraðvirkari hætti fengið til sín þær upplýsingar um sig sem til eru hér innanhúss. Kröfuharðir íslenskir neytendur vilja geta afgreitt sig sem mest sjálfir og fá fyrirsjáanlega og skýra reikninga. Við höfum treyst í sessi verkefni sem lúta að upplifun viðskiptavinarins með sérstöku verkefnateymi um stafræna þróun. Þar mun samstarf okkar við hinn alþjóðlega fjarskiptarisa Telefonica veitir okkur góða leiðsögn í nokkrum lykil langtíma stefnumiðum okkar, svo sem að fækka þjónustusímtölum enn frekar, halda áfram að auka stöðugleika kerfa og lækka kostnað við tæknirekstur.“

Nánari upplýsingar um uppgjörið veita:

Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550-6003 (orri@siminn.is)

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans s. 550-6003 (oskarh@siminn.is)


Viðhengi: