Kynningarfundur verður haldinn 30. október kl. 8:30
Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir þriðja ársfjórðung 2019 þann 29. október næstkomandi. Vakin er athygli á að uppgjörið verður birt fyrir opnun markaðar.
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 30. október 2019 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 8:30.
Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans https://www.siminn.is/umsimann/uppgjor og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni: https://livestream.com/accounts/11153656/events/8858806/player