Síminn hf. - Góður fjórðungur hjá Símanum

Helstu niðurstöður úr rekstri á 3F 2020

Orri Hauksson, forstjóri:

„Rekstur samstæðunnar er í vel ásættanlegum gangi um þessar mundir. Tekjur og afkoma þokuðust upp á við á þriðja ársfjórðungi miðað við sama tímabil í fyrra, en þá var vöruframboð samstæðunnar orðið sambærilegt við það sem nú er. Tekjur af erlendum ferðamönnum eru lítið brot af því sem var á fyrra ári, en tekjustraumar samstæðunnar innanlands fá fyrirsjáanlega og að ýmsu leyti hagfellda framvindu á fjórðunginum. Þannig vaxa stafræn afþreying og búnaðarsala umtalsvert milli ára. Tekjur af upplýsingatækni og gagnatengingum vaxa einnig lítillega milli þriðju fjórðunga áranna tveggja, en innlend farsímaþjónusta stendur í stað og talsímaþjónusta dregst saman sem fyrr. Erfitt efnahagsástand hefur enn ekki valdið verulegum vanskilum viðskiptavina samstæðunnar.

Kostnaður vegna lögfræði og málarekstrar var hár á þriðja fjórðungi ársins, en ferðakostnaður, laun og útgjöld vegna ýmissa hefðbundinna umsvifa í rekstrinum dragast saman, meðal annars vegna aukinnar fjarvinnu og samkomutakmarkana. Starfsmönnum móðurfélagsins hefur fækkað um tæplega 50 á árinu, vegna áframhaldandi útvistunar verkefna og aukinnar sjálfvirkni í starfseminni. EBITDA niðurstaða ársins stefnir í að vera í efri hluta áður útgefins spábils.

Ýmsum fyrirhuguðum fjárfestingaverkefnum ársins var slegið á frest síðastliðið vor, eftir að heimsfaraldurinn brast á. Fjárfestingar móðurfélagsins eru að miklu leyti í erlendri mynt og verða því dýrari í krónum með lækkuðu gengi. Heildaráhrif frestaðra fjárfestinga og gengisbreytinga eru að samstæðan verður við neðri mörk spábils fjárfestinga á árinu. Auk ljósleiðaravæðingar eru lykil þróunarverkefni samstæðunnar um þessar mundir nýbreytni í tæknilegum sjónvarpsafurðum félagsins, bætt gagnanýting og innleiðing dreifisamnings við Gagnaveitu Reykjavíkur. Farsímakerfi Símans er byggt upp með búnaði frá hinu sænska fyrirtæki Ericsson og á það einnig við um 5G tækni.“

 

Kynningarfundur 28. október 2020

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 28. október kl. 8:30. Fundurinn verður eingöngu rafrænn og munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans https://www.siminn.is/umsimann/uppgjor og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni: https://livestream.com/accounts/11153656/events/9362628/player.  Þeir sem vilja bera upp spurningar á meðan á streymi stendur geta sent þær á fjarfestatengsl@siminn.is og verður þeim svarað í lok fundarins.

 

Nánari upplýsingar um uppgjörið veita:
Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550 6003 (orri@siminn.is)
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans, s. 550 6003 (oskarh@siminn.is)


Viðhengi: