Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um 14. mars sl. er nú lokið.

Í 25. viku 2022 keypti Síminn hf. 1.366.952 eigin hluti að kaupverði 15.924.991 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
20.6.202213:361.366.95211,6515.924.991133.113.702
  1.366.952 15.924.991133.113.702


Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 14. mars 2022. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 1.000 milljónum króna. Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2023, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma.

Síminn átti 131.746.750 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 133.113.702 eða sem nemur 1,82% af útgefnum hlutum í félaginu.

Síminn hefur keypt samtals 82.366.952 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,13% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 999.999.991 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir, og eftir atvikum II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is.