Síminn hf. - Niðurstaða víxlaútboðs 8. október

Síminn hf. lauk í dag útboði á nýjum 6 mánaða víxlaflokki SIMINN260422.

Heildartilboð í flokkinn námu samtals 1.300 m.kr. að nafnvirði á flötu vöxtunum 7,90-8,09%. Tilboðum að fjárhæð 1.220 m.kr. að nafnvirði var tekið á 8,05% flötum vöxtum.

Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 15. október 2025. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland í kjölfarið.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar veita:
Ásgrímur Gunnarsson, markaðsviðskipti, Fossar fjárfestingarbanki hf., sími: 522 4000, netfang: asgrimur.gunnarsson@fossar.is
Davíð Birgisson Scheving, forstöðumaður fjárstýringar Símans hf., netfang: davidsch@siminn.is