Endanleg dagskrá og tillögur fyrir aðalfund Sjóvá þann 11. mars 2016 er að
finna í meðfylgjandi viðhengjum.
Í viðhengi er jafnframt að finna breytingartillögur sem bárust frá
Gildi-lífeyrissjóði innan þess frests sem getið var um í fundarboði aðalfundar
Sjóvá þann 15. febrúar sl. Um er að ræða breytingartillögur annars vegar vegna
dagskrárliðs 9 um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum og hins vegar vegna
dagskrárliðs 4 varðandi starfskjarastefnu.