Síldarvinnslan hf - Árshlutareikningur (Q1 og Q3)

Síldarvinnslan birtir afkomu fyrsta ársfjórðungs 2023 fimmtudaginn 25. maí 2023 eftir lokun markaða. Fjárfestakynning verður haldin sama dag.


Síldarvinnslan birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2023 eftir lokun markaða á fimmtudaginn kemur 25. maí.

Fjárfestakynning verður þann sama dag kl. 1615 og verður hún eingöngu send út á vefstreymi. Vefstreymið má nálgast á https://svn.is/fjarfestar/streymi/. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en kynning hefst.

Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir og á meðan á fundi stendur á netfangið fjarfestir@svn.is.

Uppgjörsgögn verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Síldarvinnslunnar, www.svn.is/fjarfestar/. Upptaka verður einnig aðgengileg á fjárfestasíðunni að fundi loknum.

Nánari upplýsingar veitir Gunnþór Ingvason í síma 470-7000 eða á fjarfestir@svn.is.