Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 36

Í 36. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 14.868.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
1.9.202509:33600.0004,972.982.000
2.9.202509:55600.0004,962.976.000
3.9.202511:38600.0004,952.970.000
4.9.202513:06600.0004,942.964.000
5.9.202515:05600.0004,962.976.000
Samtals3.000.000 14.868.000

 

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2026.

Nova Klúbburinn átti 42.000.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 45.000.000 hluti, eða um 1,27% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 218.925.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is