Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 1

Í 1. viku 2026 keypti Nova Klúbburinn hf. 1.800.000 eigin hluti að kaupverði 7.800.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
29.12.202513:33600.0004,342.604.000
30.12.202509:33600.0004,342.604.000
2.1.202613:42600.0004,322.592.000
Samtals1.800.000 7.800.000 

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2026.

Nova Klúbburinn átti 87.000.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 88.800.000 hluti, eða um 2,50% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 422.055.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is