Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 2

Í 2. viku 2026 keypti Nova Klúbburinn hf. 1.800.000 eigin hluti að kaupverði 7.692.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
5.1.202610:07600.0004,342.604.000
6.1.202610:12600.0004,222.532.000
9.1.202610:35600.0004,262.556.000
Samtals1.800.000 7.692.000 

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2026.

Nova Klúbburinn átti 88.800.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 90.600.000 hluti, eða um 2,55% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 429.747.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is