Origo - Breytingar á eigin hlutum félags

Origo hf. – Skráð lækkun hlutafjár


REYKJAVÍK - 14. mars 2019


Á aðalfundi Origo hf. 7. mars 2019 var samþykkt að lækka hlutafé félagsins um 5.703.309 krónur til samsvarandi lækkunar á eigin hlutum félagsins. Skilyrðum fyrir lækkuninni hefur nú verið fullnægt og er hún komin til framkvæmda. Samkvæmt því lækkar hlutafé félagsins úr 465.303.309 krónum að nafnverði í 459.600.000 krónur að nafnverði sem skiptist í jafnmarga einnar krónu hluti og fylgir hverjum hlut eitt atkvæði.


Nánari upplýsingar veita Finnur Oddsson, forstjóri fo@origo.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs s: 825-9001 eða gp@origo.is


ORIGO HF.
Origo. (NASDAQ OMX: Origo.IC) er samstæða fyrirtækja í upplýsingatækni. Origo er þjónustufyrirtæki og hlutverk þess felst í að aðstoða viðskiptavini að ná enn betri árangri í sínum rekstri með aðstoð upplýsingatækni, sérfræðiþekkingu starfsfólks og lipurri þjónustu. Hjá samstæðunni starfa um 550 manns. Dótturfélög Origo eru TEMPO ehf og Applicon AB. Hlutabréf Origo hf. eru skráð í Kauphöll Íslands. Nánari upplýsingar er að finna á www.origo.is

Til athugunar fyrir fjárfesta:
Origo vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna af birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar fréttatilkynningin er birt og takmarkast gildi þeirra við það sem segir í fyrirvara þessum.